Leitaðu

Smelltu á flokk

Daihatsu - leiðandi framleiðandi á smábílumPrenta þessa síðu

20. maí 2013

Daihatsu er í hópi elstu bílaframleiðenda í Japan, stofnað árið 1907, og fagnar því 100 ára afmæli árið 2007. Daihatsu bílar eru þekktir fyrir sparneytni, umhverfismildi, lága bilanatíðni og mikla endingu.

Daihatsu er einn þekktasti framleiðandi smábíla í heiminum og skilgreinir stefnu sína sem slíkur (producing compact cars). Höfuðáhersla Daihatsu á þennan hluta markaðarsins hefur skilað fyrirtækinu framúrskarandi árangri á sviði hönnunar og smíði smábíla.

Megináhersla Daihatsu hefur verið á sölu bíla í Asíu og er Daihatsu einn af 4-5 stærstu í Japan sem er einstaklega góður árangur í ljósi þess að um er að ræða einn erfiðasta bílamarkað heims. Daihatsu bílar eru eingöngu framleiddir í Japan.

Öll varahluta- og viðgerðarþjónustu hjá Brimborg
Brimborg veitir eigendum Daihatsu alla varahluta- og viðgerðarþjónstu, en heldur sem stendur ekki lager á nýjum bílum. Nánari upplýsingar um Daihatsu og vörulínu fyrirtækisins er að finna á heimasíðu Daihatsu Motor Company. Smelltu HÉR.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli